Fréttir

Síðdegis- og kvöldstundir í sumar

Á hverju sumri koma tugir þúsunda ferðamanna í Akureyrarkirkju.Kirkjan hefur verið opin til klukkan 17 á daginn yfir sumarið en frá 1.júní verður boðið upp á aukna þjónustu við ferðafólk og alla þá sem hennar vilja njóta.

Fermingarmessa og guðsþjónusta um helgina

Fermingarmessa verður laugardaginn 27.maí kl.10:30.  Stúlknakór Akureyrarkirkju leiðir sönginn.  Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.  Sr.Sólveig Halla, sr.Svavar og sr.Óskar þjóna fyrir altari.

Sunnudagsguðsþjónusta og æðruleysismessa á Dalvík

Guðsþjónusta verður að venju á sunnudaginn kl.11 í Akureyrarkirkju.  Félagar úr Kór Akureyrarkirkju leiða söng.  Organisti er Eyþór Ingi Jónsson og prestur sr.Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur.

Guðsþjónusta á uppstigningardag

Á uppstigningardag, sem jafnframt er Dagur aldraðra í kirkjunni, verður guðsþjónusta kl.14.  Kór eldri borgara syngur við undirleik Arnórs Vilbergssonar.  Haukur Ágústsson prédikar.

123 skírnarbörn í Akureyrarsókn á síðasta ári

Á héraðsfundi Eyjafjarðarprófastsdæmis, sem haldinn var í Hrafnagili, 6.maí sl.voru kynntar skýrslur sókna í umdæminu.  Þar kemur fram að 123 börn voru skírð í Akureyrarsókn á árinu 2005, útfarir voru 69 talsins og hjónavígslur 27.

Guðsþjónusta á sunnudaginn

Á fimmta sunnudegi eftir páska verður guðsþjónusta að venju kl.11.  Félagar úr Kór Akureyrarkirkju leiða sönginn.  Sóknarnefndarfólk les ritningarlestra og tekur á móti fólki í kirkjudyrum.

Vinna við heimasíðu

Þessa dagana er verið að uppfæra vefstjórnarforrit Akureyrarkirkju og af þeim sökum kunna að verða tafir á að upplýsingar séu settar inn á heimasíðuna.Beðist er velvirðingar á þessu, en síðan ætti að vera komin í samt lag innan skamms.

Á gleðidögum

Sem kunnugt er þá eru páskarnir, upprisuhátíð frelsarans, stærst allra hátíða hinna kristnu.Páskatíminn nær allt til hvítasunnu og dagarnir fjörtíu frá páskum til uppstigningardags kölluðust til forna gleðidagar.

Messa þriðja sunnudag eftir páska

Sunnudaginn 7.maí verður messa kl.11.Sóknarnefndarfólk tekur á móti kirkjugestum í forkirkju og les jafnframt ritningarlestra.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju leiða söng.

Vorferð eldri borgara

Vetrarstarfi eldri borgara lýkur með vorferð fimmtudaginn 4.maí nk.Farið verður í rútu til Ólafsfjarðar og byrjað á að skoða kirkjuna þar undir leiðsögn sóknarprests staðarins, sr.