Kórar

Kór Akureyrarkirkju
Hlutverk Kórs Akureyrarkirkju er að syngja við hátíðarhelgihald, tónleika, jólasöngva og vera glæsilegur fulltrúi kirkjunnar út á við. Kórinn er afar stór, í honum syngja tæplega 100 manns. Kórnum er skipt í 3 messuhópa, sem skiptast á að syngja við hefðbundið helgihald. Allir hóparnir leiða almennan söng, en syngja ólíka tónlist. Stjórnandi Kórs Akureyrarkirkju er Þorvaldur Örn Davíðsson.

Barnakórar Akureyrarkirkju 
Barnakórarnir eru tveir, Yngri barnakór Akureyrarkirkju er fyrir börn í 2.- 4. bekk grunnskóla og Eldri barnakór Akureyrarkirkju er fyrir börn í 5. bekk og eldri. Áhersla er lögð á að syngja skemmtilega tónlist, rétta raddbeitingu og að öllum líði vel. Kórarnir syngja við fjölskylduguðsþjónustur í kirkjunni ásamt því að syngja við ýmsar uppákomur og á tónleikum í bænum. Þeir taka þátt í kóramótum og fara í ferðalög. Æfingar kóranna eru á fimmtudögum, Yngri barnakór Akureyrarkirkju æfir kl. 14.00-14.50 og Eldri barnakór Akureyrarkirkju æfir kl. 16.00 – 17.00 í kapellu kirkjunnar. Þátttaka í barnakórastarfinu er að sjálfsögðu bæði fyrir stelpur og stráka og er ókeypis. Stjórnendur eru Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, Erla Mist Magnúsdóttir og Guðný Alma Haraldsdóttir.

Upplýsingar og umsóknir skal senda á netfangið sigrun@akirkja.is 
Skráning í barnakórastarfið er hér.