Sumartónleikar 2018

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju      

1. júlí - 29. júlí 2018   
32. starfsár / 32nd year   

Sunnudagur/Sunday 1. júlí/July kl. 17/hrs.17                    
Ó blessuð vertu sumarsól - Dúó Stemma
Dúó Stemma, þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari fagna sumrinu með íslenskum þjóðvísum, þulum, ljóðum og ljóðum tengdum sumrinu. Þau flytja einnig skemmtilega hljóðsögu um vináttu með hljóðfærum sínum. Dúóið leikur á ýmis hefðbundin hljóðfærii eins og víólu og marimbu en einnig óhefðbundin á borð við hrosskjálka, íslenska steins og barnaleikföng. 
Skemmtilegir og áhugaverði tónleikar fyrir alla fjölskylduna.                              

Sunnudagur/Sunday 8. júlí/July kl. 17/hrs.17 
Þjóðlög í þjóðleið – Cantoque Ensemble
Cantoque Ensemble er átta radda sönghópur sem skipaður er mörgum af bestu söngvurum Íslands sem margir hverjir hafa sungið hlutverk á sviði Íslensku óperunnar og víðar. Á tónleikunum tekst hópurinn á við útsetningar á íslenskum þjóðlögum, bæði nýjar og gamlar og verða útsetningar eftir þrjú íslensk tónskáld frumflutt.           

S
unnudagur/Sunday 15. júlí/July kl. 17/hrs.17
It’s a Woman’s World – Olga Vocal Ensemble
Alþjóðlegi sönghópurinn Olga Vocal Ensemble fagnar listakonum síðustu 1000 ára með tónleikum þar sem þemað er femínismi. Á efnisskránni eru meðal annars lög eftir Hildgard von Bingen, Barböru Strozzi og lög sem eru þekkt í flutningi Ninu Simone, Edith Piaf og Billie Holliday. Einnig verða flutt lög sem sérstaklega hafa verið samin fyrir Olgu. Fjölbreytni í tónlistarstíl og lagavali ræður ríkjum og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.      

Sunnudagur/Sunday 22. júlí/July kl. 17/hrs.17
   
Einleikur á orgel – Eyþór Franzson Wechner
Eyþór Franzson Wechner, orgelleikari hefur haldið einleikstónleika á Íslandi, í Þýskalandi og Ástralíu. Hann lauk mastersgráðu árið 2014 við Hochschule fur Musik und Theater í Leipzig og starfar nú sem organisti Blönduóskirkju. Á tónleikunum leikur Eyþór fjölbreytta og krefjandi efnisskrá en hann flytur verk eftir Mozart, Buxtehude, Karg-Elert, Bach, Saint Saens og Rossini.            

Sunnudagur/Sunday 29. júlí/July kl. 17/hrs.17 
Listamaðurinn lengi við þar undi – Dúo Las Ardillas
Dúo Las Ardillas skipa hörpuleikarinn Sólveig Thoroddsen Jónsdóttir og lútuleikarinn Sergio Coto Blanco en þau kynntust í Bremen í Þýskalandi, þar sem þau stunduðu bæði nám í flutningi endurreisnar- og barokktónlistar á söguleg hljóðfæri. Þau hafa haldið tónleika á Íslandi, í Þýskalandi og í Kosta Ríka. Á tónleikunum leikur Sólveig á ítalska þríraðahörpu og Sergio á endurreisnarlútu. Á efnisskránni eru verk eftir John Dowland, Orlando di Lasso, Giovanni Antonio Terzi, Pierre Attaingnant og Giovanni Maria Trabaci, sem og íslensk þjóðlög.

Tónleikaröðin er styrkt af Tónlistarsjóði, Menningarsjóði Akureyrar, Sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóði Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis.

Sumartónleikar - Aðgangur ókeypis   
Sommerkoncerter - Gratis adgang   
Summer concerts - Admission free   
Concerts d´été - Entrée gratuite   
Sommerkonzerte - Eintritt frei   

Upplýsingar/information: Lára Sóley Jóhannsdóttir  
Sími/tel: 867-0749   
Tölvupóstur/email: larasoley82@gmail.com   

www.akirkja.is/page/sumartonleikar