Fréttir

Sunnudagur 13. janúar

Guðsþjónusta í kapellu kl.11.00.  Sr.Óskar Hafsteinn Óskarsson.  Félagar úr messuhópi aðstoða.  Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.  Súpa og brauð á vægu verði í Safnaðarheimilinu eftir guðsþjónustuna.

Opið hús hjá Samhygð

Fimmtudaginn 10.janúar n.k.verður opið hús hjá Samhygð, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð.Innlegg fundarins verður "Að horfa fram á við eftir nýliðna hátíð".Allir hjartanlega velkomnir.

Barna- og unglingastarf

Athygli skal vakin á því að barna- og unglingastarf kirkjunnar hefst ekki fyrr en miðvikudaginn 23.janúar, en barnakórarnir hefja starfið aftur fimmtudaginn 10. janúar.  Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Akureyrarkirkju.

Sunnudagur 6. janúar, þrettándinn

Messa kl.11.00.  Sr.Svavar Alfreð Jónsson.  Kór Akureyrarkirkju syngur.  Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.  Súpa og brauð á vægu verði  í Safnaðarheimilinu að messu lokinni.