Hjónavígsla

Til að panta hjónavígslu í Akureyrarkirkju vinsamlegast hafið samband í síma 462-7700 eða sendið póst á netfangið gyda@akirkja.is  Greiða þarf umsjónagjald fyrir kirkjuna kr. 6000. Ef óskað er eftir prestþjónustu má senda fyrirspurn á presta kirkjunnar, Hildur Eir Bolladóttir hildur@akirkja.is , Jóhanna Gísladóttir johanna.gi@kirkjan.is eða Aðalsteinn Þorvaldsson adalsteinn@akirkja.is
Gjald fyrir hjónavígslu (samkvæmt gjaldskrá Prestafélags Íslands 1. apríl 2022) kr. 21.830. Æfing vegna hjónavígslu utan dagvinnutíma prests er 10.915 krónur.

Um hjónavígslu

Kirkjuleg hjónavígsla er helgiathöfn þar sem tveir einstaklingar, karl og kona, eða tveir karlar eða tvær konur, heita ævitryggðum, að eiga, njóta og þiggja saman önn sem yndi lífsins, gleði og sorgir.

Hjónavígslan er tjáning gleði og fagnaðar, samstöðu, ábyrgðar og vonar á þessum vegamótum lífsins sem hjónin á. Söfnuðurinn umlykur hjónin fyrirbæn sinni ásamt kirkjunni allri og vill með Jesú Krist sem fyrirmynd sýna því samfélag hinnar gagnkvæmu þjónustu og þörf allra fyrir samfélag við Guð og náungann utan hrings fjölskyldunnar.

Návist Guðs í hjónabandinu veitir hjónunum hjálp til að lifa saman í kærleika og umhyggju og vera vottar þess í umhverfi sínu.

Hjónin játast hvort öðru opinberlega fyrir Guði og söfnuðinum, heita því að vera hvort öðru trú, elska og virða hvort annað. Guð sameinar þau og þau tvö verða eitt. Presturinn minnir á skuldbindingar og ábyrgð og fyrirheit hjónabandsins, og lýsir þau hjón og leggur blessun Guðs yfir hjúskap þeirra. Viðstaddir biðja fyrir þeim og heimili þeirra.

Hjúskaparsáttmálinn sjálfur er veraldleg stofnun. Karl og kona, karl og karl eða kona og kona sem heimild hafa til hjúskapar lýsa því yfir í áheyrn votta að þau vilji vera hjón og síðan handsala þau þennan sáttmála. Efnislega er enginn munur á þessu hvort sem um er að ræða borgaralega hjónavígslu eða kirkjulega. Samkvæmt íslenskum lögum hafa prestar og forstöðumenn safnaða heimild til að annast þennan borgaralega gjörning. Önnur sambúðarform eru einnig möguleg samkvæmt lögum, en kirkjan kemur ekki nema að þessari, og hefur heldur ekki lagalega heimild til þess. Önnur algeng heiti á hjónavígslu eru brúðkaup og gifting.

Það sem greinir kirkjulega hjónavígslu frá borgaralegri er fyrst og fremst ákveðin afstaða brúðhjónanna til kristinnar trúar. Þetta er kristin hjúskaparstofnun. Þessvegna verður amk annað brúðhjónanna að tilheyra Þjóðkirkjunni og gert er ráð fyrir því að ef hjónin eignast börn að þau verði alin upp í kristinni trú. Kirkjubrúðkaup er því grundvöllur að kristnu heimili.

Meginregla er að kirkjubrúðkaup fari fram í kirkju. Í það minnsta skulu vera viðstaddir tveir vottar, eða svaramenn, en oftast eru það fleiri, úr söfnuðinum eða fjölskyldum brúðhjónanna. Heimild er fyrir því að giftingarathöfn geti farið fram á heimili eða utanhúss. (kirkjan.is)

Þegar hjónaefni óska eftir hjónavígslu þarf að leggja fram (eða sýna) eftirtalin gögn:

Fæðingarvottorð frá Þjóðskrá Íslands.

Persónuskilríki, t.d. vegabréf eða ökuskírteini.

Vottorð frá Þjóðskrá Íslands um hjúskaparstöðu eða sambærilegt vottorð frá erlendu yfirvaldi.

Gögn um að fyrri hjónabandi sé lokið.

Ef annað hjónaefna eða bæði eru erlendir ríkisborgarar og þau óska að hjónaband sé lögformlega gilt er áskilið að rætt sé fyrst við könnunarmann hjá embætti sýslumanns áður en farið er að skipuleggja hjónavígslu með presti.