Fréttir

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju

Síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru næstkomandi sunnudag, 25.júlí.Að þessu sinni ætla þær stöllur Eydís Franzdóttir, óbóleikari, og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti í Akureyrarkirkju, að leika fyrir gesti kirkjunnar.

Sunnudagur 20. júní

Messa kl.11.00.Sr.Hannes Örn Blandon, prófastur, setur sr.Hildi Eir Bolladóttur í embætti.Kór Akureyrarkirkju syngur.Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.Kaffi í Safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Sunnudagur 13. júní

Mótormessa í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Jóna Lovísa Jónsdóttir.Kristján Þ.Kristinsson, formaður Bílaklúbbsins, prédikar.Mótoráhugamenn sjá um tónlistina og lesa ritningarlestra dagsins.

Sunnudagurinn 6. júní, sjómannadagurinn

Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Svavar Alfreð Jónsson.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

Athugið !

Þar sem við höfum ekki fengið lista yfir ungmenni fædd 1997 frá Brekkuskóla viljum við biðja foreldra/forráðamenn þeirra að hafa samband í síma 462-7700 (milli kl.9.00 og 13.

Laugardagur og sunnudagur

Laugardagur 29.maí Fermingarmessa kl.10.30.Prestar eru sr.Svavar Alfreð Jónsson og sr.Jóna Lovísa Jónsdóttir.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Hvítasunnuhelgin í Akureyrarkirkju

Laugardagur 22.maí Fermingarmessa kl.10.30.Prestar eru sr.Jóna Lovísa Jónsdóttir og sr.Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Tónleikar

Stúlknakór Hamborgar og Kammerkórinn Ísold halda tónleika í Akureyrarkirkju, miðvikudaginn 19.maí.Stúlknakór Hamborgar er margverðlaunaður kór skipaður rúmlega 40 stúlkum á aldrinum 12-19 ára.

Mömmumorgunn

Næstkomandi miðvikudag, 19.maí frá kl.9.30-11.30, verður síðasti mömmumorgunn vetrarins í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju, hvetjum við alla þá foreldra sem komið hafa til okkar í vetur til að koma, hitta aðra foreldra og leyfa börnunum að leika sér.

Sunnudagur 16. maí

Guðsþjónusta kl.11.00.Yfirskrift predikunar "Kraftaverkakonur hversdagsins".Prestur er sr.Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.Kvennakór Akureyrar syngur við undirleik Daníels Þorsteinssonar.