Fréttir

Fermingarbörn vorsins 2017

Til að finna lista yfir fermingarbörn vorsins 2017 má smella hér.

Sunnudagur 5. mars

Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar Fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl.11.00.Barnakórar kirkjunnar syngja.Sunnudagaskólasöngvar og Biblíusaga.Umsjón með stundinni hafa sr.

Fræðslu- og umræðukvöld í Glerárkirkju miðvikudaginn 1. mars kl. 20.00

Fyrsta fræðslukvöldið verður á miðvikudaginn 1.mars kl.20.00 undir yfirskriftinni Sístæð siðbót í nútímanum.Efni kvöldsins verður Samfélagsþróunin og trúarlífið: Hvað er framundan? Í erindinu mun Rúnar Vilhjálmsson fara yfir stöðu og þróun trúarlífs í samfélaginu í ljósi hugmynda um nútímavæðingu og veraldarhyggju.

Sunnudagur 26. febrúar

Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl.11.00.Þar mun séra Nicholas Loyara prédika og segja frá starfinu í heimasöfnuði sínum í Pókot-héraði í Keníu.Þar á Akureyrarkirkja vinasöfnuð og safnaði nýlega fyrir þaki á kirkjubyggingu þar ytra.

Sunnudagur 19. febrúar, konudagurinn

Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Hildur Eir Bolladóttir.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Sólveig Anna Aradóttir.Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl.

Foreldramorgnar í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju

Foreldramorgnar í Safnaðarheimilinu alla miðvikudagsmorgna frá kl.10.00 til 12.00.Næstkomandi miðvikudag, 15.febrúar, fáum við heimsókn frá Rauða krossinum.Boðið verður upp á skyndihjálparnámskeið fyrir foreldra með ungbörn.

Konurnar og orgelið

Sunnudaginn 12.febrúar kl.16.00 verða tónleikar í Akureyrarkirkju sem nefnast Konurnar og orgelið.Á tónleikunum mun Sigrún Magna Þórsteinsdóttir flytja orgelverk samin af konum.

Sunnudagur 12. febrúar

Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Svavar Alfreð Jónsson.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl.

Opið hús hjá Samhygð

Opið hús hjá Samhygð, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð, í fundarsal Safnaðarheimilisins fimmtudaginn 9.febrúar kl.20.00.Sr.Svavar Alfreð Jónsson verður með erindi/spjall tengt sorg og sorgarviðbrögðum.

Samvera eldri borgara

Samvera eldri borgara í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudaginn 9.febrúar er kl.15.00.Rafn Sveinsson fer yfir feril Vilhjálms Vilhjálmssonar í tali og tónum.Hljómsveit Pálma Stefánssonar spilar.