Samvera eldri borgara


Samvera eldri borgara í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudaginn 9. febrúar er kl. 15.00.
Rafn Sveinsson fer yfir feril Vilhjálms Vilhjálmssonar í tali og tónum. Hljómsveit Pálma Stefánssonar spilar. Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Sólveigar Önnu Aradóttur. Almennur söngur.
Kvenfélag Akureyrarkirkju sér um glæsilegar veitingar.

Bíll fer frá Víðilundi kl. 14.25, Mýrarvegi 111 kl. 14.35 og Hlíð kl. 14.45.