Fréttir

Sunnudagur 8. nóvember

Gospelmessa í Akureyrarkirkju kl.11.00.Kristniboðsdagurinn.Margrét Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur, talar um konur og kristniboð. Gospelkór Akureyrar syngur.Tekið verður við samskotum til kristniboðsins.

Samvera eldri borgara

Samvera eldri borgara í Safnaðarheimilinu fimmtudaginn 5.nóvember kl.15.00.Farið yfir feril Óðins Valdimarssonar í tali og tónum.Stúlkur frá Dansstudio Alice sýna dans.Almennur söngur.

BINGÓ BINGÓ BINGÓ

ÆFAK-Æskulýðsfélgar Akureyrarkirkju stendur fyrir bingói til styrktar ferðasjóði sínum í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju miðvikudaginn 4.nóvember kl.18.00.Veglegir vinningar í boði.

Sunnudagur 1. nóvember, allra heilagramessa

Messa í Akureyrarkirkju kl.11.00.Í messunni verður fræðsla um sorg og sorgarviðbrögð.Prestur er sr.Hildur Eir Bolladóttir.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Sunnudagur 25. október

Vísnamessa í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Svavar Alfreð Jónsson.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl.

Helgin 17. og 18. október

Laugardagurinn 17.október Tónskólamessa í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Guðmundur Guðmundsson.Nemendur og kennarar Tónskóla Þjóðkirkjunnar heimsækja Akureyrarkirkju.

Tónleikar í Akureyrarkirkju

Tónleikar í Akureyrarkirkju þriðjudaginn 13.október. Klarup Skoles kor og Stúlknakór Akureyrarkirkju halda sameiginlega tónleika í Akureyrarkirkju í tilefni af Íslandsheimsókn danska kórsins.

Sunnudagur 11. október

Messa í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Svavar Alfreð Jónsson.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.Tekið verður við samskotum til aðstoða flóttafólki.

Opið hús hjá Samhygð

Opið hús hjá Samhygð, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð, í fundarsal Safnaðarheimilisins 8.október kl.20.00.  Gunnar Árnason framhaldsskólakennari verður með erindi um sjálfsvígsforvarnir.

Sunnudagur 4. október

Messa í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Hildur Eir Bolladóttir.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.Tekið verður við samskotum til aðstoðar flóttafólki.