Fermingarstarf

Fermingarfræðsla veturinn 2026-2027 (árg. 2013)

Skráning í fermingarfræðsluna fer fram í Abler. Akureyrarkirkja. Fermingarfræðsla Akureyrarsókn 2026-2027.

Fermingarfræðslan hefst með dagsferð 29. og 30. ágúst á Hólavatn.
Laugardaginn 29. ágúst - Brekkuskóli og Oddeyrarskóli
Sunnudaginn 30. ágúst - Lundarskóli og Naustaskóli

Lagt verður af stað frá Akureyrarkirkju kl. 9.00. Áætluð heimkoma kl. 16.00. Sérstök skráning er í ferðina og hefst hún 4. ágúst. Rútugjald kr. 1000, innheimt við skráningu.

Kostnaður vegna fermingarfræðslunnar er:
Fræðslugjald skv. gjaldskrá Prestafélags Íslands kr. 26.188 og gjald fyrir lán á fermingarkyrtli kl. 1500 (kyrtilgjald greiðist á vorönn).

Fermingarfræðslan er opin öllum ungmennum á fermingaraldri óháð trúfélagsaðild sem hafa áhuga á því að fræðast um kristna trú og fermast.
Ath. við leggjum áherslu á að öll börn á fermingaraldri eigi þess kost að koma í fermingarfærðslu og á fjárhagur fjölskyldunnar ekki að vera hindrun, þegar svo ber undir mega foreldrar gjarnan hafa samband við presta kirkjunnar.

Fermingardagar 2027 eru eftirfarandi:
Laugardagurinn 8. maí kl. 11 og 14
Sunnudagurinn 9. maí kl. 11 og 14
Laugardagurinn  15. maí kl. 11 og 14
Hvítasunnudagur 16. maí kl. 11 og 14

Við fermum að hámarki 20 börn í hverri athöfn.

Dagskrá vetrarins:
Fermingarstarfið hefst með kynningarfundi miðvikudaginn 20. maí kl. 20.00. Fundurinn er bæði fyrir fermingarbörn og foreldra.
Helgin 29. og 30. ágúst
- Dagsferð á Hólavatn.
Laugardagurinn 26. september kl. 11.00-14.00
- Fermingarfræðsla.
Fimmtudagurinn 15. október kl. 20.00-21.00 - Fræðsla fyrir fermingarbörn og foreldra.
Fimmtudagurinn 5. nóvember kl. 16.15-19.00 - Söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.
Fimmtudagurinn 26. nóvember kl. 17.00-19.00 - Jólafræðsla.
Laugardagurinn 23. janúar kl. 10.00-13.00 - Fermingarfræðsla.
Laugardagurinn 20. febrúar kl. 10.00-13.00 - Fermingarfræðsla.
Fimmtudagurinn 4. mars kl. 17.00-19.00 - Fermingarfræðsla.
Mætingarskylda er alla dagana.

Viðtöl:
Brekkuskóli - þriðjudaginn 2. mars kl. 15.00, mæting í Safnaðarheimilið.
Lundarskóli - þriðjudaginn 9. mars kl. 15.00, mæting í Safnaðarheimilið.
Oddeyrar- og Naustaskóli - þriðjudaginn 16. mars, mæting í Safnaðarheimilið.

Messusókn í vetur
Fermingarbörnin verða nokkrum sinnum í vetur boðuð sérstaklega til messu en auk þess eru foreldrar og forráðamenn þeirra eindregið hvött til að fylgjast með því að börnin sæki messur reglulega (að minnast kosti átta sinnum yfir veturinn) og hvött til að koma sjálf með börnum sínum í kirkju.

Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við Gyðu, ritara kirkjunnar, á netfangið gyda@akirkja.is 

Er barnið þitt skráð í Þjóðkirkjuna ?
Ef ekki, smelltu á slóðina til að skrá, https://kirkjan.is/skraning-i-thjodkirkjuna