Barnastarf 2023-2024




Skráning í barnastarf Akureyrarkirkju og upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga.

Akureyrarkirkja starfar á grundvelli laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, annarra skyldra laga, reglugerða og starfsreglna Kirkjuþings sem eiga sér stoð í lögum. Þegar um ræðir vinnslu persónuupplýsinga fylgir Akureyrarkirkja lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. 
Í tengslum við barnastarf eru persónuupplýsingar unnar sem liður í lögmætri starfsemi og/eða á grundvelli samþykkis viðkomandi. Með skráningu og þátttöku í barnastarfi heimila forráðamenn barnsins skráningu og meðferð/vinnslu upplýsinga sem fer fram vegna barnastarfs og er í eðlilegum tengslum við það, þar með talið upplýsingar um barnið sjálft og upplýsingar sem eðlilegt er að séu aðgengilegar, eins og hverjir séu forráðamenn þess. 
Samþykki þetta gildir meðan það er ekki afturkallað.