Upphaf vetrarstarfsins í Akureyrarkirkju

Sunnudaginn 16. september kl. 11.00 verður fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju og markar hún upphaf vetrarstarfs kirkjunnar.
Við hefjum veturinn af fullum krafti, sunnudagaskólinn verður á sínum stað, kirkjukórinn ásamt prestum og starfsfólki kirkjunnar. Sr. Svavar Alfreð, sr. Hildur Eir, Sunna Dóra æskulýðsfulltrúi, Hjalti Jónsson tenór og sunnudagaskólakennari og Sigrún Magna organisti leiða stundina.

Að lokinni guðsþjónustu verður opið hús í Safnaðarheimilinu, léttar veitingar í boði og fólk sem heldur utan um hina ýmsu starfsþætti kirkjunnar verður á staðnum til að kynna starfsemi vetrarins. Nú er um að gera að mæta og vera með frá upphafi í skemmtilegu og öflugu kirkjustarfi Akureyrarkirkju.

Verið öll hjartanlega velkomin í kirkjuna í vetur.