Tónleikar, annar í páskum

Víðþekktur rússneskur kór TRETYAKOV syngur á Akureyri annan í páskum, 24. mars n.k.  Það er einstakt tækifæri, sem þarna býðst, að hlýða á óviðjafnanlegan rússneskan söng.  Þessi kór

Víðþekktur rússneskur kór TRETYAKOV syngur á Akureyri annan í páskum, 24. mars n.k.  Það er einstakt tækifæri, sem þarna býðst, að hlýða á óviðjafnanlegan rússneskan söng.  Þessi kór kom til Reykjavíkur í desember 2005 og þóttu tónleikar kórsins í Seltjarnarneskirkju einstakur viðburður í tónlistarlífinu.  Kórinn syngur jöfnum höndum á tónleikum, á sýningum og við kirkjulegar athafnir, auk þess sem söngskóli er rekinn á vegum kórsins.
Rússneska sendiráðið hefur í samvinnu við AIM-Festival á Akureyri haft milligöngu um þessa heimsókn.  Rétt er að geta þess að einn af stærstu viðburðum AIM-Festival á Akureyri í júní n.k. verður flutningur á einu stórbrotnasta kórverki allra tíma Wesper op. 37 eftir Rússann Rachmaninov.  Má líta á tónleika TRETYAKOV kórsins, sem forboða þessa viðburðar.

Kórinn syngur við guðsþjónustu að hætti rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í Glerárkirkju og hefst athöfnin kl. 9.30 f.h.  Síðar sama dag kl. 15.00 verða tónleikar í Akureyrarkirkju.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.