Tónleikar

Jón Þorsteinsson tenórsöngvari hefur sent frá sér hljómdiskinn "Ó, Jesú, að mér snú" sem hefur að geyma 23 sálma og trúarljóð úr sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar.  Hér er að finna fjölbreytt val sálma sem fylgt hafa þjóðinni um aldir, frá Hallgrími Péturssyni til okkar daga.

Í tilefni af þessari útgáfu efnir Jón til útgáfutónleika í Akureyrarkirkju mánudaginn 10. september kl. 20:30 þar sem hann flytur efni af hljómdiskinum við undirleik Harðar Áskelssonar orgelleikara.  Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir.