Syngjum jólin inn


Hinir árlegu jólatónleikar Kórs Akureyrarkirkju, Syngjum jólin inn, verða haldnir sunnudaginn
7. desember n.k. kl. 17.00 og 20.00.

Á tónleikunum syngur kórinn jólalög af nýútkomnum geisladiski. Stjórnandi kórsins er Eyþór Ingi Jónsson og organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Diskurinn verður seldur á staðnum og kostar kr. 2500.-