Sunnudagur 8. október

Fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, Hjalti Jónsson og Una Haraldsdóttir.

Bleik messa í Akureyrarkirkju kl. 20.00.
Lára Sóley, Hjalti, Sigrún Magna og Kvennkór Akureyrar flytja fagra tóna. Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á krabbameinsdeild SAk og Dóróthea Jónsdóttir tölvunarfræðingur sem á reynslu af brjóstakrabba, flytja hugleiðingar. Í ár verður tekið við samskotum til styrktar Minningarsjóði Heimahlynningar Akureyrar og nágrennis. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir.