Sunnudagur 7. desember, annar sunnudagur í aðventu

Helgistund í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Stundin er tileinkuð átaki gegn kynbundnu einelti.
Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson.

Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.00.

Umsjón sr. Hildur Eir Bolladóttir og Hjalti Jónsson.

Syngjum jólin inn - Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju í Akureyrarkirkju kl. 17.00 og 20.00.

Á tónleikunum syngur kórinn jólalög af nýútkomnum geisladiski. Stjórnandi kórsins er Eyþór Ingi Jónsson og organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Diskurinn verður seldur á staðnum og kostar kr. 2500.-