Sunnudagur 16. september, upphaf vetrarstarfs.

Fjölskyldurguðsþjónusta kl. 11.00.  Börn fá afhenta kirkjubók fyrir sunnudagaskólann.  Opið hús í Safnaðarheimilinu þar sem kynntir verða helstu starfsþættir vetrarins, boðið verður upp á léttar veitingar, allir velkomnir.

Fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra strax eftir guðsþjónustuna.