Sunnudagaskólinn byrjar aftur!

Þann 12. janúar byrjar sunnudagaskólinn okkar aftur eftir gott jólafrí. Við höldum ótrauð áfram með biblíusögur, leiki, söng og leikrit og eigum vonandi eftir að eiga góðar stundir saman á þessari vorönn. Eftir hverja stund er börnunum boðið að lita mynd, drekka djús og spjalla saman að ógleymdum límmiðum sem þau fá í stíl við sögu dagsins.  Fullorðnir fá sér gjarnan kaffi og eiga gott samfélag með öðrum foreldrum.  Afar notalegar stundir sem taka svona 30-40 mínútur.  

Allir hjartanlega velkomnir, börn, foreldrar, systkini, ömmur, afar, frænkur og frændur.