Sumartónleikar í Akureyrarkirkju

Björg Þórhallsdóttir og Elísabet Waage
Björg Þórhallsdóttir og Elísabet Waage
Fimmtu og jafnframt síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju, verða haldnir sunnudaginn 29. júlí kl. 17. Flytjendur eru Björg Þórhallsdóttir, sópransöngkona og Elísabet Waage, hörpuleikari.

Dagskráin er fjölbreytt; spannar íslensk og erlend sönglög og fjölmargar aríur. Einnig munu þær stöllur flytja mjög skemmtilegar útsetningar af nokkrum negrasálmum.

Tónleikarnir standa í klukkustund án hlés og er aðgangur ókeypis.