Sumartónleikar í Akureyrarkirkju 29. júní

Keltnesk sumarljóð - White Raven ásamt Gerry O'Connor
sunnudaginn 29. júní kl. 17
Aðgangur er ókeypis og tekið við frjálsum framlögum - öll velkomin!

 

Keltnesk sumarljóð

White Raven ásamt Gerry O'Connor, írskum fiðluleikara

 

Sumardagskrá söngtríósins White Raven flytur hlustendur að ströndum Írlands og Skotlands, vötnum, ám og fjöllum. Hlý keltnesk sumarnótt tvinnast við írsk þjóðlög um ástina, og vögguvísur á Írsku. Hér gefur að heyra nokkur þekktustu laga White Raven, svo sem "Oft in the stilly night" eftir írska tónskáldið Thomas Moor, og sungin ljóð Williams B. Yeats, þar á meðal "The Stolen Child", "White Birds" og "The song for Wandering Aenghus".

Gerry O'Connor leikur fegurstu fiðlustemmur og lög frá fæðingarstað sínum, Oriel í Louth-sýslu.

 

White Raven skipa:

Kathleen Dineen, sópran

Matthias Deger, tenór

Matthias Spoerry, baritón