SUMARTÓNLEIKAR Í AKUREYRARKIRKJU 2021

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju hafa verið haldnir frá árinu 1987 og er önnur elsta tónleikaröðin á Íslandi. Sumartónleikar í Akureyrarkirkju skipa mikilvægan sess í menningarlífinu á Norðurlandi og er partur af Listasumri ár hvert. Tónleikarnir hafa ávallt verið alla sunnudaga í júlí en að þessu sinni breytum við út af þemanu og hefjum fyrstu tónleikana sunnudaginn 27. júní. Það verða því fimm tónleikar í ár sem spannar mikla og flotta tónlistarflóru. Allir tónleikarnir eru haldnir kl 17:00 og frítt er á þá alla. Það er þó ávallt tekið við frjálsum framlögum.

Það eru þær Helena Guðlaug Bjarnadóttir, Petrea Óskarsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir sem hefja tónleikaröðina í ár, eins og áður var nefnt, þann 27. júní kl 17:00 en þær munu flytja okkur tónlist fyrir sópran, flautu og orgel frá ýmsum tímum eftir konur og karla s.s. barokkverk eftir Telemann og Händel og ný verk eftir Arngerði Maríu Árnadóttur og Emmu Lou Diemer.
Þann 4. júlí taka svo við af þeim Jónína Björt Gunnarsdóttir, Ívar Helgason og Valmar Väljaots. Þau munu flytja tónlist úr teiknimyndum, leikritum, ævintýrum o.fl. og verða þetta hinir glæsilegustu fjölskyldutónleikar.
11. júlí stígur á svið tríóið Gadus Morhua. Þau munu flytja frumsamið efni sem fléttast saman í hljóðheim þar sem barokk mætir íslensku baðstofunni.
18. júlí kemur Stengjakvartettinn Spúttnik og leikur nýja efnisskrá á hljóðfæri smíðuð af fiðlusmiðnum Jóni Marinó Jónssyni.
Olga Vocal ensemble botnar tónleikaröðina í ár, þann 25. júlí. Þeir flytja klassísk verk og jazzlög yfir í yfirtónasöng saminn af meðlimum Olgu. 

Það má því með sanni segja að margt sé á döfinni og að fjölbreytt dagskrá sé í boði í ár. Við hlökkum til að sjá ykkur í Akureyrarkirkju síðasta sunnudaginn í júní og alla sunnudaga í júlí kl 17:00.
Eins og áður segir eru frítt á alla viðburði en tekið er við frjálsum framlögum.

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru styrktir af Akureyrarbæ, Sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóði.