Sumarmessur á Akureyri - seinni hluti

Í sumar verður samstarf milli Akureyrar- og Glerárkirkju með helgihaldið í kirkjunum.
Það verða morgunmessur í Akureyrarkirkju og kvöldstundir ýmist í Lögmannshlíðarkirkju eða Glerárkirkju.
Verið velkomin til kirkju í sumar.
 
Sunnudagurinn 31. júlí
Helgistund í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Séra Hildur Eir Bolladóttir þjónar, organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Sunnudagurinn 7. ágúst
Prjónamessa í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Séra Hildur Eir Bolladóttir þjónar, organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Mætum endilega með handavinnu til kirkju og eigum ljúfa morgunstund.
Ein saga - eitt skef í Glerárkirkju kl. 16.00-20.00.
Verkefnið "Ein saga- eitt skref" sem er samstarf Samtakanna '78 og þjóðkirkjunnar verður kynnt, upptökur af sögum hinseginfólks af viðmóti þjóðkirkjunnar í gegnum árin verða spilaðar fram að kvöldmessunni. Kirkjan verður opin og hægt að sitja í lengri eða skemmri tíma, kveikja á kerti og hlusta.
Regnbogamessa í Glerárkirkju kl. 20.00.
Séra Sindri Geir Óskarsson þjónar, Krossbandið sér um tónlistina. Guðsþjónusta í tilefni hinsegindaga og verkefnisins "Ein saga, eitt skref".

Sunnudagurinn 14. ágúst
Morguníhugun í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Séra Sindri Geir Óskarsson þjónar, við komum saman í kyrrð og bæn og eigum ljúfa morgunstund. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Íhugunarkvöldmessa í Glerárkirkju kl. 20.00.
Séra Sindri Geir Óskarsson þjónar, þema stundarinnar er íhugun og kyrrð. Við notum nokkur form íhugunar við stundina, hvílum í þögn og ljúfum tónum. Stund sem hentar bæði fólki með reynslu af íhugun og byrjendum. Organisti er Valmar Väljaots.