Streymt verður frá helgihaldi næstkomandi sunnudag

Sunnudaginn 18. október kl. 11.00 verður boðið upp á streymi frá sameiginlegum sunnudagaskóla Akureyrarkirkju og Glerárkirkju. Streymt verður á facebook-síðum kirknanna.
Þennan sama dag verður streymt frá Akureyrarkirkju kl. 20.00 í gegnum facebook, Bleikri helgistund í tilefni af bleikum október. Prestar eru sr. Jóhanna Gísladóttir og sr. Sindri Geir Óskarsson. Eyþór Ingi Jónsson og Birkir Blær Óðinsson sjá um tónlistina. Hildur Eir Bolladóttir flytur hugleiðingu.