Strákafjör í Akureyrarkirkju

Maímánuður í Akureyrarkirkju var tileinkaður fjörugum strákum í 1.-3.bekk.  Þeir komu hvern miðvikudag í maí og fóru í leiki og skoðunarferðir og gerðu margt skemmtilegt. 

Fyrsti tíminn var haldinn í kirkjunni sjálfri þar sem farið var í hópeflisleiki.  Farið var í skoðunarferð um kirkjuna og feluleik í allri kirkjunni.  Að lokum var lesin biblíusagan um Faðirvorið.

Annar tíminn var utan við kirkjuna og þá var farið í þrautir; kirkjutröppuhlaup, stígvélakast, krítað og svarað skemmtilegum spurningum.  Svo endaði samveran á sögustund í kirkjutröppunum. 

Í þriðja tíma var farið í boltaleiki á Hamarkotstúni og í fjórða og síðasta tímanum voru pylsur og djús, haldið búningaball, horft á myndbönd úr sunnudagaskólaefninu um Nebba og Hafdísi og Klemma, og svo var farið í frjálsa leiki.  Drengirnir fengu svo allir kveðjuskjöl í lokin frá kirkjunni ásamt barmmerki.

Strákarnir voru spenntir fyrir að mæta í kirkjuna sína og hlökkuðu alltaf til að koma aftur og aftur.  Þeim var sagt frá vetrarstarfinu og hvattir til að mæta í haust.

Það er von okkar í Akureyrarkirkju að sjá strákana í haust í kirkjustarfinu enda skemmtilegir og fjörugir drengir á ferðinni.