Starf æskulýðsfulltrúa við Akureyrarkirkju

Akureyrarkirkja í samstarfi við Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastdæmi auglýsir laust til umsóknar starf æskulýðsfulltrúa.

Um er að ræða 100% stöðu sem veitist frá 1. ágúst 2018.

Æskulýðsfulltrúi skipuleggur og annast barna- og æskulýðsstarf Akureyrarkirkju auk þess að efla samskipti og samstarf í æskulýðsstarfi á starfssvæðinu og styðja við það. 

Jákvætt viðhorf til kirkjustarfs er forsenda fyrir velgengni í starfinu. Sköpunargleði, frumkvæði og yfirburða hæfni í samskiptum eru lykilkostir æskulýðsfulltrúa. 

Umsækjendur skulu hafa menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfinu. 

Nánari starfslýsing er á heimasíðu Akureyrarkirkju, 
www.akirkja.is  

Umsækjendur skulu tilgreina tvo meðmælendur og umsóknir sendar í tölvupósti til ritara Akureyrarkirkju á netfangið 
gyda@akirkja.is. Upplýsingar um starfið má ennfremur fá á skrifstofu kirkjunnar eða í síma 462-7700 milli kl. 9.00 og 13.00 virka daga. 

Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2018.