Séra Hildur Eir Bolladóttir valin

Valnefnd Akureyrarprestakalls ákvað á fundi sínum þann 6. apríl að leggja til að sr. Hildur Eir Bolladóttir verði skipuð prestur í Akureyrarprestakalli.
Embættið veitist frá 1. júní næstkomandi.
Sex umsækjendur voru um embættið.
Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar, sem skipuð er níu fulltrúum úr Akureyrarprestakalli ásamt prófasti Eyjafjarðarprófastsdæmis.