Samvera eldri borgara


Samvera eldri borgara verður haldin í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudaginn
3. nóvember kl. 15.00. 
Rafn Sveinsson fer yfir feril Sigfúsar Halldórssonar í tali og tónum. Hljómsveit Pálma Stefánssonar spilar.
Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Kvenfélag Akureyrarkirkju sér um glæsilegar veitingar. Bíll fer frá Víðilundi kl. 14.25, Mýrarvegi 111 kl. 14.35 og Hlíð kl. 14.45.