Samvera eldri borgara

Samvera eldri borgara í Safnaðarheimilinu fimmtudaginn 4. apríl kl. 15.00.
Flutt verður brot af því besta frá fyrri samverum. Hljómsveit Pálma Stefánssonar spilar. Gestasöngvari er María Björk Jónsdóttir. Kvenfélag Akureyrarkirkju sér um veitingarnar. Aðgangseyrir er kr. 1500.
Bíll fer frá Víðilundir kl. 14.15, Mýrarvegi 111 kl. 14.25 og Hlíð kl. 14.35.