Krílasálmamessa í Akureyrarkirkju kl 11.00.
Messan er byggð upp úr krílasálmanámskeiði og Krútt Tónó sem nýlega lauk og er á forsendum yngstu barnanna. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja með okkur barnasálma sem allir ættu að kunna. Í krílasálmamessunni eru börnin virkjuð í gegnum hreyfingu og skynjun á gefandi hátt þannig að allar kynslóðir njóta. Í lok stundarinnar gefst foreldrum kostur á að ganga með barn sitt upp að altarinu þar sem það er signt og blessað. Stundin er aðeins um hálftíma löng.
Tilvalin gæðastund í páskafríi fyrir foreldra með ungbörn og ömmur og afa. Umsjón séra Hildur Eir og Sigrún Magna organisti og krílasálmakennari.