Opin kirkja á aðventu

Akureyrarkirkja verður opin milli kl 17:00 og 19:00 dagana 14. – 18. desember. 
Þar sem ekki verða neinar hefðbundnar aðventusamkomur, tónleikar eða aðrir viðburðir, sem fyrir mörgum eru fastir liðir í aðdraganda jólanna þetta árið, þá býður Akureyarkirkja fólki til kyrrðarstunda á jólaföstu. Kirkjan verður opin frá kl. 17:00. Lágstemmd aðventu- og jólatónlist flutt í hljóðkerfi. Fólk getur komið og farið að vild, setið svo lengi sem það vill og kveikt á kertum á Ljósberanum. Bænastund hefst kl. 18:00. Organistar kirkjunnar munu leika við upphaf og lok stundarinnar. Kirkjan verður áfram opin til kl. 19:00. 

Gildandi fjöldatakmarkunum verður fylgt, grímuskyldu og öðrum sóttvarnarreglum.