Opið hús hjá Samhygð

Opið hús hjá Samhygð, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudaginn 8. nóvember kl. 20.00.
Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur flytur erindi um ástvinamissi og sorgarvinnu. Á 999 daga tímabili kvaddi Vilborg eiginmann, tengdamóður, föður og litla dótturdóttur. Bók hennar um þessa reynslu, Ástin, drekinn og dauðinn, hefur vakið mikla athygli og hlotið lof fyrir að fjalla um ástvinamissi og sorg á annan hátt en áður hefur sést. Þar lýsir hún vegferð sinni og manns síns eftir að hann greindist með krabbamein í heila sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og segir einnig frá fyrsta árinu sem ekkja en þá greindist faðir hennar einnig með krabbamein. Bókin veitir í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst en er ekki síður óður til kærleikans, hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífsævintýrinu.

Í erindinu fjallar Vilborg um hvernig lífsógnandi sjúkdómur breytir tilveru allra sem í kring standa, um mikilvægi þess að meðtaka dauðann sem hluta af lífinu og þær gjafir sem sorgin færir okkur. Þá bendir hún einnig á ýmsar leiðir til þess að veita sorginni farveg í sköpun. Fyrirlesturinn er á vegum Samhygðar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð, og hægt verður að skrá sig í stuðningshóp fyrir syrgjendur á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir.