Nýtt krílasálmanámskeið að hefjast


Þriðjudaginn 8. september hefst nýtt 
Krílasálmanámskeið í kapellu Akureyrarkirkju. Námskeiðið er ætlað foreldrum3-12 mánaða ungbarna og markmiðið er að kenna foreldrum hvernig nota má tónlist til aukinna tengsla og örvunar við börnin þeirra. Kennd eru ýmis lög og leikir og lögð áhersla átengsl snertingar, söngs og hreyfingar. Raddir foreldranna eru þær fyrstu sem ungbörn læra að þekkja og það veitir þeim öryggi og ánægju að heyra þær. Sönghæfileikar skipta því engu máli í þessu samhengi en málið snýst fyrst og fremst um að rækta tengsl foreldris og barns! Á námskeiðinu er notast við þekkt barnalög, leiki og þulur en einnig kynnt tónlist til hlustunar og leikið með hljóðfæri. Námskeiðið er tvisvar í viku, 45 mínútur í senn, á þriðjudögum og á föstudögum kl. 10:30 og er þátttökugjald kr. 4000 fyrir sex skipti. 


Skráning og nánari upplýsingar veitir Sigrún Magna í síma 820-7447, einnig má senda tölvupóst á netfangið sigrun@akirkja.is