Minningarstund vegna fósturláta

Minningarstund vegna fósturláta verður haldin í Höfðakapellu þriðjudaginn 16. september kl. 16.30. Minningarstundin er hugsuð til að koma til móts við þau ótalmörgu sem upplifað hafa sorg vegna fósturláts. Að stundinni lokinni verður gengið í fósturduftreitinn í kirkjugarðinum, þar sem hægt er að leggja blóm við minnisvarðann. Minningarstundin er haldin í samvinnu Sjúkrahússins á Akureyri og Útfararþjónustu kirkjugarða Akureyrar. Prestur er sr. Guðrún Eggertsdóttir. Tónlistarflutning annast þær Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti og Sigríður Hulda Arnardóttir, söngkona. Athöfnin er öllum opin.