Minningarstund vegna fósturláta

Minningarstund vegna fósturláta verður haldin í Höfðakapellu á Akureyri fimmtudaginn 12. september kl. 16.30. Minningarstundin er hugsuð til að koma til móts við þau ótalmörgu sem upplifað hafa sorg vegna fósturláts.
Að stundinni lokinni verður gengið í nýjan fósturduftreit í kirkjugarðinum, þar sem hægt verður að leggja blóm við minnisvarðann. Minningarstundin er haldin í samvinnu Sjúkrahússins á Akureyri og Útfararþjónustu kirkjugarða Akureyrar. Prestur er sr. Guðrún Eggertsdóttir, tónlistarflutning annast Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organisti og Sigríður Hulda Arnardóttir söngkona. Athöfnin er öllum opin.