Mánudagar gegn mæðu

Síðasta vetur efndi Akureyrarkirkja til samvera í Safnaðarheimili kirkjunnar undir yfirskriftinni Mánudagar gegn mæðu.

Nú hefur verið ákveðið að endurvekja þessar samverur.
Sú fyrsta verður mánudaginn 9. nóvember og hefst kl. 20.00.
Þar talar Corinne Demspey, prófessor í trúarbragðafræðum við Wisconsin háskólann í Bandaríkjunum.
Corinne hefur rannsakað andlega hæfileika í Indlandi og ritað um það í bækur og blöð. Undanfarið hefur hún dvalið á Íslandi og kannað viðhorf Íslendinga til andlegra hæfileika og hvernig þeir eru notaðir hér á landi.
Á mánudegi gegn mæðu ætlar Corinne að segja okkur frá rannsóknum sínum og bera saman Ísland og Indland að þessu leyti.
Hún flytur mál sitt á ensku en það verður endursagt á íslensku.
Eftir að Corinne hefur talað syngja stúlkur úr tónlistarstarfi Akureyrarkirkju nokkur lög við undirleik Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur.
Boðið verður upp á kaffi og síðan verða umræður þar sem Corinne svarar fyrirspurnum áheyrenda.
Aðgangur er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.