Mánudagar gegn mæðu

Fjórða samveran í röðinni "Mánudagar gegn mæðu" er í dag, mánudaginn 17. nóvember kl. 20.00, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Þar fjallar Bryndís Símonardóttir, fjölskylduráðgjafi, um fjölskylduna og mikilvægi hennar. Fjölskyldukór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar og heitt verður á könnunni. Fundarstjóri er Margrét Blöndal.
Allir eru hjartanlega velkomnir.

Aðgangur er ókeypis enda gefa allir sem að samverunum koma vinnu sína. 

Einnig minnum við á Lögmannavaktina, ókeypis lögfræðiaðstoð í Safnaðarheimilinu alla mánudaga frá kl. 17.30 til 19.00. Tímapantanir í síma 462-7700, milli kl. 9.00 og 13.00, alla virka daga.