Leikritið Kamilla og þjófurinn sýnt á sunnudaginn

Stoppleikhópurinn sýnir nýtt íslenskt barnaleikrit, Kamilla og þjófurinn, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju klukkan 11 sunnudaginn 9. október. Allir eru velkomnir. Leikgerð Stoppleikhópsins er byggð á þekktri sögu eftir Kari Vinje en Valgeir Skagfjörð er höfundur tónlistar og söngtexta. Leiksýningin er ætluð börnum á aldrinum 1-8 ára og tekur um 20 mínútur í flutningi. <P>Stoppleikhópurinn sýnir nýtt íslenskt barnaleikrit, Kamilla og þjófurinn, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju klukkan 11 sunnudaginn 9. október. Allir eru velkomnir. Leikgerð Stoppleikhópsins er byggð á þekktri sögu eftir Kari Vinje en Valgeir Skagfjörð er höfundur tónlistar og söngtexta. </P> <P>Kamilla litla býr ásamt Soffíu, stóru systur sinni,&nbsp;í litlu, rauðu húsi sem heitir Sólarstofa. Soffía vinnur fyrir peningum handa þeim svo að þær geti keypt sér mat og fatnað. Foreldrar þeirra eru dánir. Besti vinur Kamillu heitir Sebastían. Hann er innbrotsþjófur, en dag einn ákveður hann að hætta að stela. Hann ætlar að verða guðs barn.</P> <P>Sögur Kari Vinje eru uppfullar af mannlegri hlýju og húmor en fræða börnin um leið um kristilega hugsun og gjörðir. </P> <P>Leiksýningin tekur um 20 mínútur í flutningi og er ætluð börnum á aldrinum 1-8 ára. Leikstjóri er Katrín Þorkelsdóttir en leikarar þau Eggert Kaaber og Margrét Kaaber.</P>