Kór Akureyrarkirkju er að hefja vetrarstarfið

Kór Akureyrarkirkju er að hefja vetrarstarfið. Inntökupróf verða í kapellu kirkjunnar mánudaginn 13. september kl. 17-19. Nánari upplýsingar gefur Björn Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju í síma 4627702 eða 4625642.

Í vetur er ýmislegt á döfinni hjá Kór Akureyrarkirkju, t.d.  jólasöngvar í desember, föstuvaka í mars, kaffitónleikar og þátttaka í Kirkjulistaviku 2005.

Kórinn hefur fastar æfingar á þriðjudagskvöldum kl. 20 auk æfingardaga, æfingarhelga og sérstakra æfinga fyrir guðsþjónustur á sunnudögum. Kórnum er skipt í 4 messuhópa er skiptast á að syngja við messur en auk þess syngur kórinn allur að jafnaði einu sinni í mánuði. Kórfélagar syngja einnig við guðsþjónustur á Dvalarheimilinu Hlíð og á hátíðum á Fjórðungssjúkrahúsinu og í Minjasafnskirkjunni. Stjórnandi Kórs Akureyrarkirkju er Björn Steinar Sólbergsson, organisti og formaður kórsins er Lúðvík Áskelsson.