Konungleg tónlist í Akureyrarkirkju

Fimmtudaginn 16. júlí, kl. 20.00 munu fimm norskar stúlkur, sem kalla sig Norwegian Cornett & Sacbuts, flytja konunglega tónlist sem leikin var við hirð Kristjáns fjórða, Noregs- og Danakonungs á 17. öld. Þær leika á hljóðfæri frá þessum tíma, trompet, básúnur, zink og ýmis önnur málmblásturshljóðfæri ásamt trommum. Þær hafa hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir leik sinn og mikla umfjöllun í Noregi og eru nú á tónleikaferð um Norðurlöndin. Alls halda þær 15 tónleika en aðeins tvenna tónleika á Norðurlandi.
Aðgangur er ókeypis og óhætt að mæla með þessum óvenjulega tónlistarviðburði.