Konudagsmessa í Akureyrarkirkju sunnudaginn 22. febrúar

Við bjóðum upp á mannrækt af bestu gerð fyrir konur og auðvitað karlana líka.

Messa kl. 11.00 með tónlist og textum eftir konur Prestur er Hildur Eir Bolladóttir og organisti Þórður Sigurðarson.

Hljóðheilun í kirkjunni kl. 13.00.
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir leiðir stundina ásamt Gongsveit. 
Fólk hefur val um að liggja á dýnum eða sitja í kirkjubekkjum, gott er að taka með sér hlýtt teppi.