Kirkjudagur, 16. nóvember

Næstkomandi sunnudag er árlegur kirkjudagur í Akureyrarkirkju. Þar verður mikið um dýrðir, dagskráin hefst með sunnudagaskóla í kapellu kirkjunnar kl. 11.00.
Klukkan 14.00 er svo hátíðarmessa í kirkjunni. Prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari en dr. Einar Sigurbjörnsson, prófessor, prédikar. Kór Akureyrarkirkju og Stúlknakór Akureyrarkirkju syngja undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Einsöngvarar eru þær Björg Þórhallsdóttir og Elvý Hreinsdóttir.

Á þessum kirkjudegi er minnst 40 ára vígsluafmælis sr. Þórhalls heitins Höskuldssonar. Í tilefni þess verður kirkjunni afhent vegleg gjöf, veggteppi, sem Þóra Steinunn Gísladóttir, ekkja sr. Þórhalls, gerði. Teppið er saumað eftir ábreiðu frá Hólum í Hjaltadal. Hún er frá 17. öld og er varðveitt á Þjóðminjasafni Íslands. Teppið verður hengt upp í kapellu Akureyrarkirkju.
Einnig verður stofnaður líknarsjóður í minningu sr. Þórhalls.

Að messu lokinni verður hið árlega kaffihlaðborð Kvenfélags Akureyrarkirkju í Safnaðarheimilinu.
Miðasala verður á staðnum og er miðaverð kr. 1.200,- fyrir fullorðna og kr. 300.- fyrir börn, ekki er tekið við greiðslukortum.
Einnig verða seldir hinir vinsælu lukkupakkar fyrir börn.