Jólaaðstoð 2018

Eins og undanfarið ár verður samstarf um jólaaðstoð milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Þannig er sótt um að hringt er í síma 570 4090 milli kl. 10:00 og 12:00 alla virka daga frá 26. til 30. nóvember. Bókað er viðtal þar sem fyllt er út umsókn og koma þarf með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli.

Framkvæmdin verður með eftirfarandi hætti:

Símatíma – bóka viðtal í síma 570 4090 alla virka daga milli kl. 10.00-12.00 frá 26. til 30. nóvember.
Þar er fólk minnt á að það þarf að hafa með sér staðgreiðsluyfirlit.

Viðtöl í Skipagötu 14, í sal Einingar-Iðju á 2. hæð.
Þau verða alla virka daga milli kl. 13.00 og 16.00 á tímabilinu 28. nóvember til og með 7. desember. Það þarf að koma með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum og fylla út umsókn. Sá háttur verður hafður á að hringt er í þá sem fá ekki aðstoð.

Úthlutun í Skipagötu 14, í Lionssalnum á 4. hæð.
Þau sem fá úthlutun sækja kortin þriðjudaginn 11. desember og miðvikudaginn 12. desember milli kl. 13.00 og 16.00. Auk þess fá umsækjendur úttektarkort fyrir föt og jólagjafir hjá Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2 og Hertex Hjálpræðishersins, Hrísalundi 1b. Nánari upplýsingar verða afhent með úttektarkortum.

Ef einhverjir fleiri vilja leggja átakinu lið þá er hægt að leggja inn á reikning verkefnisins, (0302-13-175063, kt. 460577-0209).
Munið, margt smátt gerir eitt stórt.