Jól í Akureyrarkirkju

Þorláksmessa, 23. desember.
Guðsþjónusta í kapellu Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Prestur er sr. Sunna Dóra Möller. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur.
Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

Aðfangadagur, 24. desember.
Aftansöngur í Akureyrarkirkju kl. 18.00.
Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Kór Akureyrarkirkju syngur.
Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Miðnæturmessa í Akureyrarkirkju kl. 23.30.
Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir. Kammerkórinn Hymnodia syngur.
Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Jóladagur, 25. desember.
Hátíðarmessa í Akureyrarkirkju kl. 14.00.
Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.
Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Annar dagur jóla, 26. desember.
Fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Prestur er sr. Sunna Dóra Möller. Barnakórar kirkjunnar og krakkar í
TTT-starfinu leika helgileik. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Jólatrésskemmtun í Safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.
Guðsþjónusta í Minjasafnskirkjunni kl. 17.00.
Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.
Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.