Hvert stefnir kirkjan ? Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup flytur erindi

Mánudagskvöldið 11. október kl. 20.00, í Glerárkirkju, verður fyrsta erindið í röð erinda undir fyrirsögninni: Fylgjum kindagötunni fyrst hún er þarna. Hvert er þjóðkirkjan að fara? Ræður stefnumótun eða stefnuleysi ? Framsögumaður verður sr. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal. Í erindi sínu gefur biskupinn yfirlit yfir helstu verkefni og áskoranir kirkjunnar frá sínu sjónarhorni og í ljósi stefnumótunar kirkjunnar. Að loknu kaffihléi mun Sunna Dóra Möller, guðfræðinemi, bregðast við erindinu áður en almennar umræður taka við. Lesa meira.......