Helgin 8. og 9. maí í Akureyrarkirkju

Laugardagur 8. maí
Fermingarmessa í Akureyrarkirkju kl. 10.30.
Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Sunnudagur 9. maí
Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Prestur er sr. Jóhanna Gísladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn i Safnaðarheimili Akureyrarkirkju sunnudaginn 9. maí kl. 11.45, eða strax að guðsþjónustu lokinni.
Dagskrá fundarins:
1. Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
2. Ársreikningar sóknarinnar lagðir fram til afgreiðslu.
3. Gerð grein fyrir starfsemi Kirkjugarða Akureyrar fyrir s.l. ár.
4. Kosning fjögurra aðal- og varamanna í sóknarnefnd.
5. Greint frá starfsemi héraðsnefnda.
6. Önnur mál.
Þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér til starfa í sóknarnefnd er bent á að hafa samband við skrifstofu Akureyrarkirkju í síma 462-7700.

Til fundarins er boðað með fyrirvara um gildandi samkomutakmarkanir á fundardegi. Verði breytingar á boðuðum fundi verður það auglýst hér á heimasíðu kirkjunnar eins tímanlega og tök verða.

Sóknarbörn eru hvött til að mæta.
Sóknarnefnd Akureyrarkirkju