Guðný Einarsdóttir á fjórðu sumartónleikunum

Færðu músina yfir myndina!Fjórðu tónleikarnir í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða haldnir sunnudaginn 23. júlí kl. 17.
Flytjandi að þessu sinni er orgelleikarinn Guðný Einarsdóttir. Á tónleikunum mun Guðný leika verk eftir Dietrich Buxtehude, Georg Böhm, Johann Sebastian Bach, Jehan Alain og Charles Marie Widor.

Sjá nánar á heimasíðu :
http://www.akureyrarkirkja.is/sumartonleikar

Guðný Einarsdóttir er fædd í Reykjavík 1978. Hún stundaði píanónám við Tónlistarskólann í Reykjavík og orgelnám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem kennari hennar var Marteinn H. Friðriksson.
Í vor lauk hún orgelnámi við Det Kongelige Danske Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn þar sem kennarar hennar voru Lasse Ewerlöf, Hans Ole Thers og Bine Bryndorf.
Guðný hefur haldið tónleika bæði á Íslandi og í Danmörku og komið fram við ýmis tilefni. Vorið 2006 gegndi hún stöðu aðstoðarorganista í Holmens kirkju í Kaupmannahöfn og mun í haust halda til Parísar og gegna stöðu organista við dönsku kirkjuna þar í borg.

Fyrr í þessum mánuði lék Guðný á tónleikum í Hallgrímskirkju og hlaut lof gagnrýnenda fyrir leik sinn.
Tónleikarnir standa í klukkustund án hlés og er aðgangur ókeypis.