Fyrsti sunnudagur í aðventu, 29. nóvember

Fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Prestur er sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir.
Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttir.

Æðruleysismessa í Akureyrarkirkju kl. 20.00.
Prestur er sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir.
Tónlist í umsjá Baldvins Ringsted, Hemma Ara og Siggu Huldu.
Kaffi og piparkökur í Safnaðarheimilinu að messu lokinni.