Föstuinngangur í kirkjunni 18. febrúar

Næsta sunnudag, sem er sunnudagur í föstuinngang í kirkjuárinu, verður guðsþjónusta kl. 11.  Félagar úr Kór Akureyrarkirkju leiða söng.  Organisti er Arnór B. Vilbergsson og prestur sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson.  Félagar úr Rotaryklúbbi Akureyrar lesa ritningarlestra.  Sunnudagaskóli á sama tíma í Safnaðarheimilinu.  Súpa og brauð á eftir.  Allir velkomnir!