Foreldramorgnar í Akureyrarkirkju

Næstkomandi miðvikudag, 5. september kl. 10.00, hefjast foreldramorgnar aftur eftir sumarfrí. Þetta er notaleg og góð samvera fyrir foreldra og ungbörn. Gott tækifæri til að hittast og spjalla og leyfa börnunum að leika sér og hitta önnur börn.
Umsjón með foreldramorgnum er sr. Hildur Eir Bolladóttir.

Aðgangur er ókeypis og eru foreldrar með ungbörn hjartanlega velkomnir.